logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir árum

Flottur föstudagur og kökusala

01/10/12

flottur_fostudagur_ed (16) (800x600)Föstudagurinn 28. september var fyrsti flotti föstudagurinn í vetur. Að því tilefni héldu nemendur í 10. bekk kökusölu í nestinu. Það voru nemendur í 10. KÁ sem hófu leikinn í ár en kökusalan verður haldin einu sinni í mánuði. Krakkarnir voru búnir að baka glæsilegar kökur og seldust þær allar upp. Kökusalan er fjáröflun fyrir vorferð 10. bekkjar.

Myndir - Kristín Ásta.(sjá á myndasíðu-sept-flottur föstudagur)

Meira ...

Líf og fjör í framsögn hjá 6. bekk.

01/10/12

framsogn_6b (12)Nemendur í 6. bekk í Varmárskóla hafa verið að vinna í skemmtilegu og áhugaverðu verkefni. Þeir unnu í hópum og fengu að velja sér efni eftir áhugasviði.

Meira ...

Haustkransagerð hjá 2-ÁH og 2-SBT

25/09/12

2b_haustkransar (8) (800x600)Þriðjudaginn 25. september fóru börnin út að tína lauf. Laufin skörtuðu sínum fallegu haustlitum. Börnin bjuggu síðan til haustkransa úr laufum og perlum. Kransarnir voru síðan hengdir upp í skólastofunum. Myndirnar tala sínu máli, sjá myndasíða - 2b haustkransagerð.

Meira ...

Kartöfluuppskera 2.ÁH og 2.SBT

18/09/12

kartoflupptaka_2b (35) (800x600)Þriðjudaginn 18. september í blíðskaparveðri tóku börnin upp kartöflur sem þau höfðu sett niður síðastliðið vor. Uppskeran var frekar lítil, en allir fengu þó með sér kartöflur heim. Sjá myndir á myndasíðunni - 2.b-Kartöflur

Meira ...

2.bekkur í fjöruferð

18/09/12

Fjoruferd_sept (800x600)Þriðjudaginn 11. september fór árgangurinn í fjöruferð. Þar var margt að skoða og fundu börnin ýmislegt, s.s. krabba, skeljar og fjaðrir. Börnin nutu útiverunnar í ágætis veðri.

Myndir á myndasíðunni - Fjöruferð 2.b

Meira ...

Samgönguvika í Mosfellsbæ

18/09/12

 samgonguvika2Reiðhjólanotkun nemenda í Varmárskóla er sífellt að aukast og er gaman að sjá hve margir nota þennan vistvæna ferðamáta. Í dag 18. september taldist 125 reiðhjól við skólann. Svo eru eftir allir þeir sem komu gangandi, á hlaupahjóli o.fl. í skólann. Það má segja að börnin standa sig vel í átakinu í sambandi við Evrópsku samgönguvikuna. Á myndasíðunni (Samgönguvika) sést vel að það vanta fleiri hjólastæði við skólann.

Meira ...

Samræmd könnunarpróf

16/09/12

Samræmd könnunarpróf hjá nemendum í 4., 7. og 10. bekk haustið 2012 verða sem hér segir:

10. bekkur
• Mánud. 17. sept. íslenska
• Þriðjud. 18. sept. enska
• Miðvikud. 19. sept. stærðfræði

Meira ...

Tónlist fyrir alla, Klangbein dúettinn

11/09/12

tonlist_2 (600x800)Þriðjudaginn 11.september fengu nemendur í 4. og 6.bekk skemmtilega heimsókn. Þar voru á ferð tónlistarmenn frá Noregi, Morten B. Engebretsen og Ole Jörn Myklebust sem léku fyrir okkur á ýmis blásturshljóðfæri á nýjan og skemmtilegan hátt. Allir, bæði nemendur og starfsfólk, skemmtu sér frábærlega. Sjá má fleiri myndir á myndasíðunni.

Meira ...

Umsóknir í mötuneyti og frístundasel

13/08/12

yellow_chefs_icon_0515-1008-0219-2046_SMUVegna undirbúnings á skólaárinu 2012-2013 minnum við foreldra á að sækja verður um áskrift í mötuneyti og frístundasel á hverju hausti í íbúagátt Mosfellsbæjar. Eldri umsóknir gilda ekki. Nýjar umsóknir þurfa að berast fyrir 20.ágúst. Vakin er athygli á að frá og með þessu skólaári er ekki hægt að sækja um færri en 4 tíma á viku í frístundaseli (sjá samþykkt).

Meira ...

Skólasetning og skólabyrjun

13/08/12

Skólasetning við Varmárskóla verður fimmtudaginn 23.ágúst.



Nemendur í 1. bekk fara í viðtöl 22. eða 23. ágúst samkvæmt útsendum bréfum. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá hjá 1. - 10. bekk föstudaginn 24. ágúst og sama dag tekur Frístundasel til starfa.

Móttaka nýrra nemenda við skólann (2.-10.bekkur) verður þriðjudaginn 21.ágúst kl. 13:00 í anddyrum skólans (yngri og eldri deild).

 

Meira ...

Síða 4 af 11

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira