logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir árum

Dagur íslenskrar tungu

20/11/12

Dagur_islenskrar_tungu (13) (800x600)Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur föstudaginn 16. nóvember. Að því tilefni unnu nemendur í eldri deild með ljóð í íslenskutímum alla vikuna á undan. Nemendur sömdu ljóð um ísland, íslensku og allt mögulegt sem þeim datt í hug. Síðan voru ljóðin skrifuð á veggspjöld og þau myndskreytt og síðan hengt upp á veggi skólans. Á myndasíðunni: Íslensk tunga má sjá afrakstur þessarar vinnu.

Meira ...

Vegna óveðursspáar 11.-12. nóvember

11/11/12

Veðurstofan varar enn á ný við stormi í nótt og á morgun og gert er ráð fyrir að vindur verði í hámarki frá kl 06:00 - 09:00 í fyrramálið.

Foreldrum er bent á að kynna sér viðbragðsáætlun vegna röskunar á skólastarfi sökum óveðurs, hana má finna með því að smella hér íslenska, pólska, enska, spænska og tælenska.

Sú regla gildir að skólahald fellur almennt ekki niður vegna veðurs. Forráðamenn skulu þó meta ef um óveður er að ræða hvort þeir senda börn sín til skóla eða ekki.
Undantekningarlaust skal þó hringja á skrifstofu skólans og tilkynna ef forráðamenn ákveða að hafa börn sín heima.

Símanúmer skólans er 525-0700. Netfang skólans er varmarskoli@varmarskoli.is

Gert er ráð fyrir að veður lægi mikið eftir hádegi á morgun. Skólinn mun senda frá sér tilkynningu í tölvupósti ef ástæða þykir til að foreldrar sæki börn sín að lokinni kennslu.

Meira ...

Dagur gegn einelti 8.nóvember 2012

09/11/12

gangnam dans (14) (800x600)Fimmtudaginn 8.nóvember var tileinkaður degi gegn einelti. Nemendur yngri deildar streymdu fram á ganga skólans kl. 9.15 og dönsuðu saman Gangnam style. Nemendur í eldri deild gerðu það að markmiði að sitja hjá aðila sem þau væru ekki vön að sitja hjá þennan dag. Einnig var hópmyndataka í stiganum til að sýna fram á sameiningartákn nemenda gegn einelti, skólabjöllunni var hringt kl. 13:00 vel og lengi og starfsfólk sat með nemendum í mötuneytinu þennan dag.

Myndir frá dansi yngri deildarinnar er á myndasíðunni: Gangnam dans

Meira ...

Hrekkjavaka hjá 7.-10.bekk

09/11/12

Hrekkjarvaka (76) (800x533)Fimmtudaginn 2. nóvember var haldið hrekkjavökuball í eldri deild Varmárskóla. Nemendaráð og ýmsir nemendur í 10. bekk undirbjuggu ballið og bjuggu m.a. til draugahús sem var afar vinsælt. Verðlaun voru veitt fyrir bestu búningana og voru það þær Kristbjörg og Sandra í 10. bekk sem klæddar voru í kúlutjöld, Halldór Ívar í 8. bekk sem hauslaus maður og Magnús snuðningsfulltrúi sem skrattinn sem hlutu verðlaun.

Sjá myndir á myndasíðu: Hrekkjarvaka

 

Myndir Kristín Ásta.

Meira ...

Rafmagn komið á í Varmárskóla

05/11/12

Heil og sæl

Rafmagn komst á Varmárskóla um kl. 8:00 og því er orðið skólafært. Foreldrar endilega sendið börnin í skólann.

Skólastjórar

Meira ...

Foreldrar sækið börnin í skólann í dag að loknum skóladegi

02/11/12

Foreldrar, vegna óveðurs eru engin börn send heim frá 1.-10.bekk samkvæmt tilmælum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins en nú hefur verið virkjað verklag um röskun á skólastarfi. Vinsamlegast sækið þau að dyrum í skólann og þau sem eru í frístundaseli að loknum dvalartíma.

Allar rútur falla niður í dag.

Skólastjórar

Meira ...

Vegna óveðurs - fylgið börnunum inn í skóla

02/11/12

Vegna óveðurs biðjum við foreldra að kynna sér áætlun vegna röskunar á skólastarfi (sjá hér hægra megin á forsíðu - Röskun á skólastarfi). Þar sem mikið rok er núna biðjum við foreldra að fylgja börnunum inn í skólann, ekki sleppa þeim lausum á bílastæðunum.

Skólastjórar

Meira ...

Vitund um læsi í víðum skilningi - Opið hús hjá Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar

29/10/12

Vitund í læsiMiðvikudaginn 31. október klukkan 20 verður fyrsta opna hús vetrarins hjá Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar. Í nýjum aðalnámskrám leik- og grunnskóla er horft til 6 lykilþátta og er einn af þeim læsi. Við höfum fengið til liðs við okkur Stefán Jökulsson lektor á Menntavísindasviði Háskóla Íslands til að fjalla um þetta efni og það hvernig það snýr að foreldrum.

Meira ...

Forvarnardagur í 9.bekkjum

29/10/12

Í ár er sjöunda árið sem að Forvarnardagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands.  Dagskrá fer fram í 9. bekkjum grunnskóla um land allt þar sem að nemendur eru beðnir um að taka virkan þátt í umræðum um forvarnir gegn fíkniefnum. Varmárskóli tekur þátt í þessari dagskrá líkt og undanfarin ár og mun hún fara fram föstudaginn 2.nóvember að þessu sinni.  Þar munu nemendur vinna í hópum og ræða og skrá eftirfarandi umræðuefni: Hvert ár skiptir máli, íþrótta- og æskulýðsstarf og samvera. Í kjölfarið horfa þau á myndband sem  framleitt hefur verið í tilefni dagsins. Í þessu sambandi er vert að benda á heimasíðuna forvarnardagur.is.

Meira ...

Bangsa- og náttfatadagur hjá 2.bekk

29/10/12

bangsadagur (40) (800x600)Þann 23. október var haldinn bangsa-og náttfatadagur í tilefni af hinum alþjóðlega bangsadegi sem er laugardaginn 27. október. Börnin komu í náttfötum í skólann með bangsa af ýmsum stærðum og gerðum. Þau unnu ýmis verkefni tengd böngsum.

Sjá fleiri myndir á myndasíðunni - 2b.-Bangsadagur

Meira ...

Síða 2 af 11

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira