logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Mikil hátíð framundan á stóru upplestrarkeppninni í Varmárskóla

10.03.2012

stóra upplestarkeppninStóra upplestrarkeppnin verður haldin í Varmárskóla fimmtudaginn 15. mars kl. 20:00.

Á hátíðinni munu nemendur í 7. bekk, sem valdir hafa verið úr grunnskólum Mosfellsbæjar, lesa brot úr skáldverki og ljóð. Að lokum mun dómnefnd velja þrjá bestu upplesarana og veita verðlaun. Auk þess koma fram ungir hljóðfæraleikarar og skólakór Varmárskóla.
Skáld keppninnar að þessu sinni eru Kristín Helga Gunnarsdóttir og Gyrðir Elíasson.

Efnt var til samkeppni um myndskreytingu boðskorts og dagskrár og verður veitt viðurkenning fyrir það á hátíðinni.

Gestir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Verðlaunamyndin prýðir þessa frétt.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira