logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Vikufréttir Varmárskóla

26.05.2023 15:15

Þá er þessari stuttu viku að ljúka. Verkefnin hafa litast af æfingum fyrir vorhátíðina sem verður í næstu viku. Foreldrar hafa fengið upplýsingabréf í mentorpósti. Við erum að vinna í að útvega okkur posa og látum ykkur vita fyrir hátíðina hvort það gengur upp hjá okkur.

Í vikunni hefur verið talsvert bras með tölvupóst hjá okkur þar sem bilun var í einu af þeim fyrirtækjum sem þjónusta okkur. Við fengum ekki inn pósta með ákveðnum lénum og fengum ekki staðfestingar á mentorpóstum þannig að í sumum tilvikum var búið að senda sama póstinn mörgum sinnum. Þetta er nú komið í lag og við vonum að engin erindi hafi farið framhjá okkur vegna þessa.

Í dag fór fram hið árlega eggjafjör 6.bekkjar. Eins og venjulega var mikil hugvitissemi í undirbúningi nemenda og spennan í hámarki þegar pökkunum þeirra, með innpökkuðum eggjum, var kastað út af annarri hæð í skólanum. Myndir frá fjörinu lýsa stemmingunni vel, fleiri myndir eru á facebook.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira