logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Vikufréttir Varmárskóla

10.02.2023 17:43

Vikan hófst með því að 4.bekkur bauð foreldrum sínum á sýningu á vinnunni sem þau hafa verið að vinna undanfarnar vikur um Frostaveturinn mikla 1918 og Spænsku veikina. Nemendur urðu mjög oft undrandi í þessari vinnu á því hve margt er líkt á okkar dögum og var á þessum tíma, mikil frost og hættuleg veirusýking. En margir þeirra voru líka fegnir og þakklátir fyrir að búa í góðum húsum, eiga vindheld föt og vegna góðrar læknisþjónustu.  Sýningin var stórskemmtileg og vel sótt.

Á miðvikudag voru svo foreldraviðtöl og við þökkum öllum sem gátu mætt með börnum sínum þennan dag og líka fyrir hversu vel minnkaði í fatastaflanum okkar. Fulltrúar frá stjórn foreldrafélagsins komu svo í dag, settu myndir inn á facebook síðuna https://www.facebook.com/groups/436097434034288 og unnu enn meira á staflanum. Við hvetjum ykkur til að skoða þetta, því þarna leynast margir týndir dýrgripir.

Veðrið hefur veirð rysjótt og í dag var hláka, hún var nýtt í frábæra samvinnu í útikennslunni eins og sjá má á þessu myndbandi https://youtube.com/shorts/vhEmUX3M3JI en kennsla í samvinnu er eitt af meginmarkmiðum í grunnskólastarfi.

Á skólastjóraröltinu í dag rakst skólastjórinn svo á þessa góðu vini sem eru hér á myndinni voru á leið í kjallarann til að taka upp leikrit. Í slíkri vinnu felst bæði samvinna, sköpun og tæknivinna.  Við leggjum okkur fram um að bjóða nemendum upp á fjölbreytt námsumhverfi og þessi verkefni eru einmitt dæmi um það.

Hafið það gott um helgina og við minnum á að í næstu viku er vetrarfrí á fimmtudegi og föstudegi og líka lokað í Frístund.

Kveðja

Starfsfólkið í Varmárskóla

Til baka

Myndir með frétt

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira