logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Vikufréttir Varmárskóla

13.01.2023 16:09

Nú er komið að lokum annarrar skólaviku þessa árs og í upphafi nýs tímabils er gott að rifja upp það sem hefur gengið vel og mikilvægt er að halda vakandi alla daga. Þá er ég að tala um markvissa vinnu við góð samskipti og til að takmarka einelti eins og kostur er.

Eins og flestir muna héldum við, í samstarfi við FMOS málþing þar sem nemendur 5. og 6. bekkjar ræddu saman, með aðstoð unglinganna úr FMOS, um hvað hægt væri að gera til að vinna gegn einelti. Veggspjöld með þeim niðurstöðum hafa verið borin í alla bekki og hanga uppi víðsvegar um skólann.

Nemendur ræddu líka um af hverju krakkar taka þátt í að leggja í einelti þó að þeir viti að það sé ekki rétt að gera. Þau svör höfum við svo notað í samræðum með nemendum til að aðstoða þá við að átta sig framkomu sinni þegar út af bregður. Á fundi skólaráðs í morgun kom fram sú hugmynd að það væri líka gagnlegt fyrir foreldra að hafa þetta yfirlit frá börnunum því foreldrar eru auðvitað oft í þessari umræðu líka og við náum enn betri árangri ef við stefnum öll í sömu átt.

Svör nemenda við því af hverju eru krakkar með í að leggja í einelti þó að þeir viti að það er ekki rétt að gera:

Þeir vilja komast í vinahóp

Til að reyna að vera eins og einhver annar sem byrjaði að leggja í einelti

Þeir vita ekki hvað þeir eru gera

Þeim líður illa heima

Vilja að öðrum líði líka illa

Reyna að geðjast öðrum/kaupa vináttu

 Standa með vinum sínum

Hópþrýstingur

Goggunarröð

Vera sjálfur ógnandi

Þeim líður illa

Vilja ekki lenda sjálf í einelti

Þora ekki að hjálpa

Lætur aðra finna fyrir því

Eru að sýna að vera ,,cool”

Afbrýðisemi út í þá sem þurfa ekki að fara gegnum erfiðleika

Þeir vilja fá viðbrögð

Þeim finnst það gaman

Hefna sín

Þeim er sama um aðra

Stundum vita þau ekki að þau eru að leggja í einelti

Sumir vilja bara gera það sem aðrir gera þó að þeir vita að það sé rangt

 

Það er bæði gott og gagnlegt að ræða þessi mál með reglubundnum hætti við börn og vonandi verður þessi listi einhverjum að gagni.

Hafið það gott um helgina

Starfsfólk Varmárskóla

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira