logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Jólakveðja

20.12.2022 11:50

Nemendur og starfsfólk Varmárskóla áttu dásamlega stund saman í morgun ein og sjá má á myndbandinu sem er komið á facebook síðuna okkar og hlekkur er á hér að neðan. Við fengum liðsauka frá kennurum Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar til að halda uppi jólaballi með lifandi tónlist og glæsilegum söng. Nemendur voru í spariskapi, eldri nemendur leiddu yngri og allir skemmtu sér konunglega. Nokkrir nemendur úr 6.bekk höfðu á orði að þetta hefði verið skemmtilegasta jólaball í heimi.

Jólahátíðin gengur nú í garð og það er svo skemmtilegt hvernig hún hvetur okkur mennina til að sýna okkar bestu hliðar og þá sérstaklega hvað varðar kærleika og manngæsku sem gerir allt betra í samskiptum manna.

Skóli hefst að nýju eftir áramót þann 4.janúar kl.8:10.

Við óskum ykkur góðra stunda um hátíðarnar.

Kveðja

Starfsfólkið í Varmárskóla

Hlekkur á sýnishorn af jólaballinu

https://youtu.be/k8iaj_UrMQw

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira