logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Vikufréttir Varmárskóla

28.01.2022 16:46

Embætti landlæknis var að senda okkur póst með ráðleggingum um morgunnesti fyrir grunnskólanemendur. Þó að flestir okkar nemenda séu í ávaxtaáskrift að morgni koma yngri nemendur með nesti fyrir frístundina. Það er mikilvægt að það nesti sé líka hollt og gott og við vitum öll að sætabrauð er ekki heppilegt sem nesti. Hér er hlekkurinn inn á síðu landlæknis, þar eru mjög góðar ábendingar um nesti almennt. https://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item48616/Ra%C3%B0leggingar%20um%20morgunnesti%20grunnskolanema%202022.pdf

Fimmti bekkur hefur tekið þátt í átakinu ,,Slöbbum saman” krakkarnir fara út með kennara á hverjum degi, hvernig sem viðrar, hreyfa sig, ná sér í súrefni og hafa gaman eins og meðfylgjandi mynd sýnir.

Við, eins og allir aðrir vonum að þessu covid ástandi fari nú að ljúka, ný reglugerð fyrir grunnskóla tók gildi í dag og þar eru mötuneyti aftur undanþegin fjöldatakmörkunum. Það hefur hins vegar gengið svo vel hjá okkur í mötuneytinu með nýja covid-sniðinu að ólíklegt verður að telja að við förum til baka í fyrra fyrirkomulag.

Við minnum svo á að foreldraviðtöl eru fimmtudaginn 3.febrúar og vonandi eru allir búnir að skrá sig. Þann sama dag er seinni bólusetningin fyrir börn í Varmárskóla. Frístund opnar svo á venjulegum frístundatíma, það er 13.20 en ekki verður rúta heim þann dag.

Hafið það gott um helgina

Kveðja

Starfsfólkið í Varmárskóla

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira