logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fyrirhugað verkfall

06.03.2020

Skipulag skólastarfs í Varmárskóla ef til verkfalls kemur  Neðanlega má sjá mikilvægar upplýsingar um skipulag skólastarfs á mánudag og þriðjudag (9. og 10. mars). 

 


Ef verkföllum er aflýst þá mun allt skóla- og frístundastarf verða með eðlilegum hætti.

Boðuð hafa verið verkföll aðildarfélaga BSRB næstu vikurnar. Um er að ræða tímabundin verkföll ákveðna daga til að byrja með og síðan 
ótímabundin verkföll frá 15. apríl (sjá yfirlit www.bsrb.is). Starfsmannafélag Mosfellsbæjar er 
innan BSRB og því eru margir starfsmenn bæjarins á leið í verkfall.
Í skólum Mosfellsbæjar er um að ræða starfsmenn í mötuneytum/eldhúsum, skólaliða, 
stuðningsfulltrúa, starfsmenn og deildarstjóra á leikskólum, starfsfólk í ræstingum, 
umsjónarmenn fasteigna, kerfisstjóra, starfsfólk á skrifstofu og einnig fara starfsmenn 
íþróttamiðstöðva og félagsmiðstöðvar í verkfall. 
Áhrif verkfallsins munu verða víðtæk og hafa áhrif á starfsemi allra leik- og grunnskóla í 
Mosfellsbæ, frístund og félagsmiðstöðvar sem og starfsemi íþróttamiðstöðva/sundlauga.

Samningaviðræður standa yfir og eru foreldrar beðnir að fylgjast vel með fréttum fjölmiðla og heimasíðum skóla. 

Grunnskólar
Áformuð tímabundin verkföll frá 9. mars til og með 1. apríl.
Áformað ótímabundið verkfall frá 15. apríl.
Í grunnskólum Mosfellsbæjar verður umtalsvert skert þjónusta:
Þrif verða með ólíkum hætti eftir skólum þar sem misjafnt er hvort um er að ræða aðkeypta 
ræstingaþjónustu eða ekki. Þar sem skerðing verður á þrifum þá verður opnun á húsnæði 
endurskoðuð á þriðja degi en það er Heilbrigðiseftirlitsins að taka ákvarðanir um lokun 
húsnæðis
Mötuneyti loka og  falla gjöld niður þann tíma sem verkfall varir.

Frístund
Ótímabundið verkfall frá 9. mars 2020.
Frístundarleiðbeinendur verða í verkfalli og starfsmenn sem sinna þrifum í húsnæði 
frístundar verða í verkfalli. Opnun á húsnæði er endurskoðuð á þriðja degi.
Frístundagjöld falla niður þann tíma sem barni er ekki boðin frístundavistun.

Félagsmiðstöðvar
Áformuð tímabundin verkföll frá 9. mars til og með 1. apríl.
Áformað ótímabundið verkfall frá 15. apríl.
Félagsmiðstöðin lokuð á öllum starfsstöðvum, í Varmárskóla, Lágafellsskóla og Helgafellsskóla.


MÁNUDAGUR 9. MARS OG ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS. 

Skólastarf í Varmárskóla
Engin gæsla er milli kl. 8:00 – 8:10 og er ekki ætlast til að nemendur mæti fyrr en kl. 8:10.
Kenndar verða fyrstu tvær kennslustundirnar frá kl. 8:10 – 9:35.
Sækja þarf nemendur tímanlega þar sem ekki er hægt að tryggja öryggi nemenda     eftir að kennslu lýkur kl. 9:35.
Stuðningur við nemendur með sérþarfir verður ekki til staðar þar sem 
stuðningsfulltrúar koma að stuðningi.
9. bekkur mætir í samræmd próf á þriðjudag eftir því skipulagi sem skólinn sendi út í morgun til foreldra nemenda í 9. bekk.
Nemendur sem eiga fara í íþróttir og/eða sund á þessum tíma mæta í þær greinar hjá sínum íþróttakennurum í aðalandyrum yngri- og eldri deildar eftir því sem við á. 
Skólabílar munu ganga samkvæmt venjulegri áætlun, þar sem skólastarfi lýkur kl. 9:35 þarf að sækja nemendur sem alla jafna nota skólabíl, þar sem skólabíllinn gengur ekki á þeim tíma. Ekki verður gæsla í skólabílum. Akstur eftir frístund heldur sér.  

Frístund í Varmárskóla
Frístund við Varmárskóla er opin en með verulegri skerðingu á þjónustu. 
Tveir starfsmenn frístundar (forstöðumaður og aðstoðarforstöðumaður) munu taka á móti börnum ef til verkfalls kemur. Mjög takmarkaður fjöldi barna getur verið í frístund 
hverju sinni frá 13.30 - 17.00 og mun skipulag verða sent til þeirra foreldra
sem eru með börn í frístund seinna í dag.

Ef frekari upplýsinga er óskað er hægt að senda fyrirspurn á póstföngin 
thorhildure@varmarskoli.is eða annagreta@varmarskoli.is
Vert er að taka fram að þjónusta og símsvörun á skrifstofu skólans verður ekki til staðar.




Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira