logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vegna COVID-19

01.03.2020 14:05
Í ljósi þess að nú hefur hættustigi almannavarna verið lýst yfir vegna COVID-19 kórónaveirunnar áréttar almannavarnadeild ríkislögreglustjóra mikilvægi þess að allir fylgi leiðbeiningum sóttvarnarlæknis.
Nýjustu upplýsingar eru ávallt að finna á vef Landlæknisembættisins: www.landlaeknir.is
 
Foreldrar eru beðnir um að fylgjast reglulega með nýjustu upplýsingum um þau svæði sem skilgreind eru sem hættusvæði. 
Ef börn eða fjölskyldur þeirra ferðast um þau svæði, þurfa þau fara í sóttkví skv. leiðbeiningum Landlæknis.
 
Foreldrum barna með skert ónæmiskerfi eða undirliggjandi öndunarfærasjúkdóma  er ráðlagt af heilbrigðisyfirvöldum að ráðfæra sig við viðkomandi sérfræðing eða heimilislækni.
Einstaklingar sem finna fyrir einkennum og hafa mögulega verið útsettir fyrir smiti t.d. vegna ferðalaga eru hvattir til að hringja í síma 1700 og fá leiðbeiningar.
Þeir sem verið hafa í nánu samneyti við einstaklinga með staðfesta eða líklega sýkingu verða settir í sóttkví og hið sama á við um þá sem ferðast hafa á undanförnum dögum til skilgreindra hættusvæða.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira