logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Glæsilegir afmælistónleikar hjá Skólakór Varmárskóla

10.05.2019 14:33

Þann 4. maí fóru fram afmælistónleikar Skólakórs Varmárskóla. Guðmundur Ómar hefur stýrt kórnum frá upphafi eða frá árinu 1979 og eru því komin 40 ár! Tónleikarnir voru hinir glæsilegustu og komu fram gamlir kórfélagar eða nemendur Guðmundar Ómars sem heiðruðu hann og kórinn. Mæting var mjög góð og fulltrúi frá foreldrafélagi Varmárskóla afhenti heiðursverðlaun foreldrafélagsins til Guðmundar Ómars. Jafnframt fékk hann viðurkenningu frá Mosfellsbæ fyrir frábært starf.

Á snjáldursíðu kórsins má sjá myndir frá tónleikunum: https://www.facebook.com/skolakorvarmarskola/

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira