logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Góður árangur í Skólahreysti

22.03.2019 13:25

Keppnin byrjaði fremur rólega hjá okkar fólki og við lentum í 7. sæti af 9 liðum í fyrstu tveimur greinunum. Það leit því leit ekki út fyrir að við myndum ná fyrstu sætunum. En keppendur tóku rösklega á og náðu 2. sæti í sínum riðli. Við eigum því möguleika að komast í úrslit í Laugadalshöllinni, en það veltur á stigfjölda annarra liða sem eru í öðru sæti í sínum riðlum.

Hrikalega flottur árangur hjá okkar nemendum bæði í keppninni og stúkunni. Það var alveg augljóst að við eigum ekki bara góða keppendur, heldur líka lang kraftmestu krakkana í stúkunni og á tímabili héldu viðstaddir að þakið myndi rifna af.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira