logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Vinningshafi í Eldvarnargetrauninni

13.02.2019 12:20
Alexander Þórðarson í 3.ÞK var einn af vinningshöfum í Eldvarnargetraun slökkviliðanna í ár og fékk vegleg verðlaun afhent á 112 deginum.

Eldvarnargetraunin hefur verið haldin á landsvísu um árabil í 3. bekkjum grunnskóla á vegum Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna í samvinnu við grunnskóla og slökkviliðin. Hugmyndin að baki getrauninni er að vekja börn til umhugsunar um eldvarnarmál og kenna þeim hvernig þau eiga að bregðast við ef hættu ber að höndum. Það sýnir sig að það borgar sig sannarlega að taka þátt, ekki einungis lærir maður sitthvað um eldvarnir heldur getur maður einnig unnið til verðlauna og jafnvel komið fram í sjónvarpi
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira