logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Snjórinn - rassaþotur

21.01.2019 07:59
Nú er fyrsta vikunni lokið eftir að við tókum inn mat frá Skólamat. Það hefur gengið mjög vel og ekki annað að heyra en nemendur séu ánægðir með matinn.

Snjórinn var vel þeginn og nemendur renndu sér glatt í brekkunni við skólann. Krökkunum er velkomið að mæta með léttar rassaþotur en stærri þotur eru ekki leyfðar þar sem bæði er erfitt að geyma þær og þær geta í sumum tilvikum valdið meiðslum þegar krakkarnir renna á hvort annað. Eitthvað er um stympingar í snjónum en þær reglur eru við Varmárskóla að ákveðið snjóboltasvæði er til staðar fyrir eldri börnin. Þar má aðeins kasta snjóboltum og hvergi annarsstaðar á skólalóðinni.

Svo viljum við minna á að næsta miðvikudag þann 23. janúar er starfsdagur í skólanum og bæði skóli og frístund lokuð þennan dag.

Ef einhverjir eiga Lego sem þeir vilja losa sig við þá þiggjum við í yngri deildinni það með þökkum. Best er að koma því til ritara.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira