logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja
18.04.2018 09:08

Aðalfundur foreldrafélags Varmárskóla verður haldinn þann 24. apríl nk kl. 18:00 í sal eldri deildar Varmárskóla.

Dagskrá aðalfundar:

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara 
  • Skýrsla stjórnar 
  • Skýrsla skólaráðsfulltrúa 
  • Skýrsla fulltrúa í svæðisráði
  • Lagabreytingar skv. 12. gr.
  • Reikningar lagðir fram til samþykktar 
  • Kosning stjórnar skv. 4.gr.
  • Kosning í skólaráð skv. 5. gr.
  • Árgjald félagsins ákveðið 
  • Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga 
  • Önnur mál 


Við hvetjum foreldra til að gefa kost á sér í stjórn félagsins. Áhugasamir geta fengið upplýsingar um starfið hjá formanni í gegnum tölvupóstfangið betavarmadal@gmail.com.

Veitingar verða í boði foreldrafélagsins að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum.
Að afloknum veitingum mun Gestur K. Pálmason stjórnendaþjálfari og fyrrum sérsveitarmaður flytja áhugaverða hugvekju um aukna frammistöðu á öllum sviðum mannlegs lífs. 


Þetta hljómar mögulega eins og innantóm klisja en ef þú ert þreytt foreldri sem langar að gera ALLT annað en að verja tveimur klukkustundum á fundi hjá foreldrafélaginu þá er þetta akkúrat það sem þú þarft á að halda"


Hvetjum alla til að mæta á þriðjudag í næstu viku, sitja aðalfund, gæða sér á veitingum og spjalla. 

 
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira