logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Innritun fyrir skólaárið 2018-2019

27.02.2018 11:10

Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2018-19 fer fram í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar.

 

Innritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2018 fer fram frá 1. mars til 20. mars og skulu nemendur sækja grunnskóla eftir búsetu (sjá nánar  reglur um skiptingu skólasvæða  á vef Mosfellsbæjar  www.mos.is).

 

Innritun í frístundasel og mötuneyti 6 ára barna og nýrra nemenda vegna skólaársins 2018-19 verður auglýst sérstaklega síðar.

 

Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem flytjast til Mosfellsbæjar skal vera lokið 1. apríl. Innritun barna og unglinga með lögheimili í Mosfellsbæ, sem óska eftir að sækja grunnskóla í öðrum sveitarfélögum utan lögheimilis, skulu berast í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar fyrir 1. apríl. Umsóknir fyrir nýtt skólaár endurnýjast ekki sjálfkrafa. Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér reglur um skólavist utan lögheimilis á vef Mosfellsbæjar.

 

Nánari upplýsingar og aðstoð varðandi innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar veita ritarar grunnskólanna. Þeir sem óska eftir aðstoð og leiðbeiningum vegna Íbúagáttarinnar geta snúið sér til Þjónustuvers Mosfellsbæjar.

 

 

Fræðsluskrifstofa Mosfellsbæjar


Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira