logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

ADHD - einkenni og hagnýt ráð - Opið hús Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar

17.02.2017 14:46
Miðvikudaginn 22. febrúar klukkan 20:00 er komið að þriðja opna húsi vetrarins hjá Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar og hadið að venju í Listasal Mosfellsbæjar.

Að þessu sinni mun Hulda Sólrún Guðmundsdóttir sálfræðingur fjalla um athyglisbrest með ofvirkni (ADHD) hjá börnum og unglingum og gefa hagnýt ráð um hvernig má vinna með veikleika og efla styrkleika þessara einstaklinga.

Farið verður yfir helstu einkenni ADHD og rætt um hvað við getum gert til að koma til móts við börn og unglinga með ADHD og stuðla að auknum og jákvæðum þroska.

Hulda Sólrún hefur starfað á Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar vel á annan áratug. Hún er sálfræðingur og kennari að mennt og hefur auk þess reynslu af vinnu með börnum í félagsstörfum og sem foreldri.

Láttu þetta áhugaverða innlegg ekki fram hjá þér fara, sjáumst!

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira