logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Viðurkenningar nemenda í eldri deild

16.03.2016
Nemendur eldri deildar voru kallaðir á sal í dag þar sem stjórnendur veittu nokkrum nemendum viðurkenningar.

Fimmtudaginn 10. mars fór lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fram í hátíðarsal Varmárskóla. Að þessu sinni fór Varmárskóli með sigur af hólmi en Bjarni Kristbjörnsson úr 7.EJÚ hlaut fyrstu verðlaun. Í öðru sæti varð svo Hálfdan Árni Jónsson úr 7.HK, einnig úr Varmárskóla. Í þriðja sæti varð Bengta Kristín Methúsalemsdóttir 7.MLG úr Lágafellsskóla. Aðrir keppendur Varmárskóla voru þær Emma Sól Jónsdóttir, Margrét María Marteinsdóttir og Cecilia Rán Rúnarsdóttir og stóðu þau sig öll með miklum sóma. Við óskum þeim til hamingju með frábæran árangur.

Þau Marína Björk Halldórsdóttir úr 7.FFE, Helga Stefánsdóttir úr 7.FFE og Magnús Gunnar Gíslason úr 7.FFE hlutu viðurkenningar fyrir myndskreytingar á dagskrá keppninnar og fjórðu myndina átti Sædís Erla Erlendsdóttir Lágafellsskóla.

Stór hópur úr Varmárskóla tók þátt í stærðfræðikeppnum í Borgarholtsskóla og í Menntaskólanum í Reykjavík eða tuttugu og fjórir nemendur. Þrír nemendur okkar voru meðal 10 efstu í Borgarholtsskóla en það eru Aron Kári Ágústsson 10. GG, Kolfinna Iðunn Atladóttir 9.KH og Daníel Ingi Jónsson. Ekki er enn vitað hvar í röðinni þau eru. Von er einnig á niðurstöðu frá Menntaskólanum í Reykjavík á næstu dögum. Nánari fréttir munu birtast á heimasíðu skólans þegar niðurstöður liggja fyrir.

Varmárskóli tók þátt í Skólahreysti miðvikudaginn 9.mars.

Liðið var þannig skipað :

Strákar :
Aron Kári - Upphýfingar og Dýfur
Kolbeinn Tómas - Hraðabraut
Anton Kryoer - Varamaður

Stelpur :
Guðrún Elísabet - Hraðabraut
Aldís - Armbeygjur og hreystigrip
Anna Pálina - Varamaður

Við erum sannarlega stolt af nemendum okkar og óskum þeim öllum til hamingju.
Til baka

Myndir með frétt

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira