logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Lestrarátak- allir lesa!

12.02.2016
Í næstu viku 15. - 19. febrúar mun fara fram lestrarátak í skólanum. Markmiðið er að allir nemendur lesi hljóðlestur í kjörbók 20 mínútur á dag.
Nemendur geta fengið bækur að láni á bókasafni skólans en við hvetjum ykkur foreldra/forráðamenn til að finna áhugaverðar bækur með börnum ykkar og ræða við þau um innihaldið. Það skiptir máli að þau finni bækur sem þau ráða við og hafa áhuga á að lesa.
Tíminn sem veittur er í lesturinn er mikilvæg yfirlýsing skólans um að lestur skipti miklu máli. Við lítum svo á að yndislestur auki við orðaforða, skilning, þekkingu og námsárangur nemenda. Lestur bókmennta er mikilvægur liður í almennri lestrarþjálfun og lestur stuðlar að betra valdi á máli, sem er mikilvægt í mannlegum samskiptum. Því hefur einnig verið haldið fram að bókmenntalestur sé mikilvægur liður í mótun sjálfsmyndar barna og unglinga. Í bókmenntum leita ungir lesendur að fyrirmyndum og máta sig inn í aðstæður sögupersónanna.
Hvetjum foreldra til að kíkja á bókasafnið eða í bókaskápinn heima.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira