logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Ný heimasíða hjá Varmárskóla

28.10.2015 14:47
Í dag fer í loftið ný heimasíða fyrir Varmárskóla. Talsverðar breytingar eru á útliti síðunnar og efnisflokkun. Breytingarnar eru gerðar með þarfir notenda í huga og með það fyrir augum að hún sé fyrst og fremst upplýsingaveita um það starf sem fram fer í Varmárskóla. Breytingarnar á útlitinu eru gerðar í samræmi við það sem tíðkast í ört breytilegu umhverfi í vef- og tæknimálum og síðan er "skalanleg" þ.e. hún er hönnuð með það í huga að auðvelt sé að nota hana í snjalltækjum.

Allar ábendingar um efnistök síðunnar eru vel þegnar og er hægt að koma til skila í gegnum valmöguleika á forsíðu eða með því að senda tölvupóst á varmarskoli[hjá]varmarskoli.is
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira