logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar

16.03.2015 14:56
Á dögunum var haldin keppni í upplestri á meðal nemenda í 7. bekk skólans. Þessi undankeppni var liður í undirbúningi fyrir Stóru upplestrarkeppnina sem haldin verður á meðal 7. bekkinga í bænum síðar í þessum mánuði. Síðan í nóvember hafa nemendur æft upplestur í íslenskutímum og kusu sjálfir þá sem þeim fannst standa sig best úr hverjum bekk.

Í undankeppninni tóku svo tíu nemendur þátt og valdi dómnefnd fimm keppendur sem munu taka þátt í lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fyrir hönd skólans. Það voru þau Dagbjört, Patrekur Orri, Máni og Ástrós úr 7.HLB og Metta úr 7.SG sem voru valin auk þess sem Kristín úr 7.SG var valin sem varamaður.
Þessir nemendur halda áfram þjálfun í upplestri fram að lokahátíðinni sem fer fram í Lágafellsskóla fimmtudagskvöldið 26. mars og verður gaman að sjá hvernig þessum frábæru nemendum mun ganga þar.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira