logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Kroppurinn er kraftaverk - opið hús hjá Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar

27.02.2015
Fjórða opna hús vetrarins hjá Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar verður haldið miðvikudaginn 04. mars klukkan 20:00 í Listasal Mosfellsbæjar.
Eins og fram hefur komið, verður í vetur lögð áhersla á hagnýt ráð varðandi uppeldi og samskipti við börn og unglinga. Ráð sem foreldrar, systkin, ömmur og afar, þjálfarar, kennarar og allir þeir sem koma að uppvexti barna og unglinga geta nýtt sér. Að þessu sinni fjallar Sigrún Daníelsdóttir, sálfræðingur og höfundur bókarinnar Kroppurinn er kraftaverk um líkamsvirðingu meðal barna og unglinga. Sjá nánar um opna húsið hér.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira