logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Litlu jólin yngri deild

18.12.2014 07:36
Föstudaginn 19. desember eru stofujól og jólaskemmtun í yngri deild. Skóli hefst að venju kl. 8.10 en lýkur fyrr en vanalega eða kl. 12.10. Boðið er upp á gæslu í skólanum til kl. 13.00. Frístundasel er síðan frá 13.00-17.00.
Ávextir eru ekki þennan dag og hvetjum við nemendur til að taka með sér hollt nesti EN það má taka með sér „óhollt nesti“ eins og smákökur og gosdrykki (helst litlar dósir). Í hádegismat er pizza.
Rútur fara kl. 12.25 fyrir þá sem fara ekki í gæslu og kl. 13.10 fyrir þá sem fara ekki í Frístundasel og einnig er skólabíll kl. 16.00 eins og vanalega.
Skóli hefst að nýju þriðjudaginn 6. janúar samkvæmt stundaskrá.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira