logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Samráð um framtíð skóla og skólabygginga í Mosfellsbæ

22.05.2013 08:33

Stefnumót við framtíðinaEins og kunnugt er stendur Mosfellsbær á tímamótum varðandi gerð nýrra skólabygginga fyrir leik- og grunnskóla.  Af því tilefni býður Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar íbúum bæjarins og þeim sem nær standa skólasamfélaginu til samráðs um skóla og skólabyggingar í nútíð og framtíð.

Fundurinn var haldinn í Varmárskóla eldri deild, laugardaginn 25. maí, kl. 10 – 12

Tilgangur fundarins er að safna saman hugmyndum íbúa, skólafólks og foreldra um hvað prýði góðan skóla og gott skólahúsnæði.  Mosfellsbær mun í kjölfarið taka saman niðurstöður þessa samráðsfundar og þær nýtast sem grunnur að hugmyndum um næstu gerð skóla og skólabygginga í Mosfellsbæ. 

Sérstakir fundir með sama tilgangi verða síðan haldnir með nemendum í leik- og grunnskólum bæjarins.

Boðið verður upp á morgunkaffi kl. 9:30.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira