logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja
10.01.2013 12:25

Um áramótin gaf Björgunarsveitin Kjölur á Kjalarnesi Varmárskóla bekkjarsett af hlífðargleraugum til að nota í eðlisfræði í unglingadeild. Um er að ræða vönduð hlífðargleraugu sem falla vel að andliti nemenda en eitt af þeim atriðum sem farið er yfir í eðlisfræði er öryggi í mismunandi kringumstæðum lífsins. Björgunarsveitinni er þakkað fyrir góða gjöf sem mun koma sér vel á komandi tímum.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira