logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Opin hús fyrir foreldra í Mosfellsbæ

26.10.2012 07:00

Líkt og undanfarin 9 ár verður Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar með opin hús í vetur fyrir alla þá er koma að uppeldi barna. Hvert kvöld hefst á stuttri fræðslu um efni kvöldsins og lýkur á spurningum og samræðum að því loknu. Opnu húsin eru haldin í Listasal Mosfellsbæjar í Kjarna, síðasta miðvikudagskvöld í mánuði kl. 20:00-21:00 nema annað sé auglýst sérstaklega.

 

Gefnar hafa verið út nýjar aðalnámskrár leik- og grunnskóla og er í þeim gengið út frá 6 lykilþáttum: læsi, sjálfbærni, jafnrétti, sköpun, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi.

Í vetur verður á opnum húsum sjónum beint að þessum þáttum og hvernig þeir snúa að foreldrum/forráðamönnum.

31. október 2012 - Vitund um læsi í víðum skilningi

28. nóvember 2012 - Hefur barnið þitt áhrif á eigið líf?
Mannréttindi barna og þátttaka í lýðræði.

30. janúar 2013 - Það verður tamast sem í æskunni nemur

Heilbrigði og velferð

27. febrúar 2013 - Sjálfbærni, ákall um ábyrgð og áhuga

19. mars 2013 - Jafnréttismenntun, tækifæri fyrir alla

23. apríl 2013 - Enn meira gaman
Umræður á opnu húsi um sköpun, flæði og gleði í lífi barna, heima og heiman !

Auglýst með fyrirvara um breytingar.

 

Foreldrar/forráðamenn, starfsmenn leik- og grunnskóla og aðrir bæjarbúar,
tökum þessi kvöld frá, hittumst og eigum samræður um málefni er varða börn og unglinga í Mosfellsbæ.

 

Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira