logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Maríta forvarnarfræðsla

02.10.2012 13:50

Líkt og undanfarin misseri fengum við í Varmárskóla Magnús Stefánsson frá Marita forvarnarfræðslunni til að koma og vera með forvarnarfræðslu fyrir nemendur í 7., 8., 9. og 10. bekk. Nemendur fengu fræðslu á skólatíma, sáu nýja forvarnarmynd og fengu að koma með fyrirspurnir til Magnúsar. Foreldrum og forráðamönnum var síðan boðið á fræðslufund á fimmtudagskvöldið í síðustu viku. Á milli 60 og 70 foreldrar mættu og hefðum við gjarna viljað sjá fleiri.Foreldar sáu sömu mynd og nemendur, fengu síðan fræðslu um hvað beri að varast og hvaða vísbendingar gefi grun um neyslu á vímugjöfum. Í lokin voru umræður og fyrirspurnir, þökkum þeim sem mættu og hvetjum alla til að fræða og ræða við börn sín um skaðsemi vímuefna og mikilvægi heibrigðs lífsstíls.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira