logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar skólaárið 2012 - 2013

29.02.2012

Mos_logo_gildiInnritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2012-13 fer fram í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar.
Innritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2012 fer fram frá 1. mars til 18. mars og skulu nemendur sækja grunnskóla eftir búsetu
(sjá nánar reglur um skiptingu skólasvæða á vef Mosfellsbæjar www.mos.is

Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem flytjast til Mosfellsbæjar eða koma úr einkaskólum þarf að fara fram fyrir 1. apríl.

Sérstök athygli er vakin á því, að umsóknarfrestur vegna náms í grunnskólum annarra sveitarfélaga er til 1.apríl og skulu umsóknir berast í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar.

Athygli er einnig vakin á því að nemendur með lögheimili í Mosfellsbæ er sækja nú þegar skóla í öðrum sveitarfélögum þurfa líka að sækja um fyrir 1. apríl, þar sem umsóknir endurnýjast ekki sjálfkrafa.

Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér reglur um skólavist utan lögheimilis á vef Mosfellsbæjar.

CartoonKids

Nánari upplýsingar og aðstoð veita skólastjórnendur grunnskólanna og Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar.

Þeir sem óska eftir aðstoð og leiðbeiningum vegna Íbúagáttarinnar geta jafnframt snúið sér til Þjónustuvers Mosfellsbæjar.

Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira