logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Nemendur úr 9. og 10. bekk í Varmárskóla heimsóttu Riga í Lettlandi 11. – 16. febrúar

17.02.2012

Vikuna 11. – 16. febrúar voru 15 nemendur og þrír kennarar úr Varmárskóla,  í  Riga í Lettlandi að taka þátt í Nordplus junior verkefni.  Nemendurnir heimsóttu  jafnaldra sína í  Rīgas Zolitūdes Ģimnazijaskólanum.  Nemendurnir voru að vinna að verkefnum  um mengun, umhverfi, heilsu og hreyfingu.  Íslensku nemendurnir kynntu Ísland, Mosfellsbæ og Varmárskóla. Einnig  kynntu þau hinar ýmsu niðurstöður sem þau höfðu unnið að,  t.d. spurningakannanir sem lagðar höfðu verið fyrir og fleira.  Lettnesku nemendurnir og kennarar þeirra koma til Íslands  9. apríl og þá verður áfram unnið með markmið verkefnisins.

Nemendurnir sem fóru í þessa ferð eru: Rakel, Hólmfríður, Elín Aðalsteina, Vera Sif, Eva Lára, Einar Vignir, Eyþór, Benedikt Magni, Viðar Már, Patrik Elí, Kristófer, Davíð Þór, Róbert, Garðar og Tómas.  Kennararnir  sem fóru voru: Jóna Dís, Hanna Bjartmars og Sigríður Hafstað.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira