logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Vekjum athygli á því sem vel er gert

28.04.2011

 Frá Verkefnisstjóra Íslensku menntaverðlaunanna – stigur@spar.is

Íslensku menntaverðlaunin verða afhent í sjöunda sinn núna í vor. Verðlaun þessi eru sannkölluð þjóðarverðlaun því hver og einn getur sent inn sínar tilnefningar. Við höfum flest skoðanir á því hvað sé góður kennari, frábært námsefni ellegar góður skóli.

Því viljum við hvetja alla til að senda inn tilnefningar um þá sem þeir telja að hafi gert góða hluti og eigi skilið að fá Íslensku menntaverðlaunin, og þannig vekja athygli á því sem vel er gert í íslenskum grunnskólum.

 

Verðlaunaflokkar Íslensku menntaverðlaunanna:

 

1. Skólar sem sinnt hafa vel nýsköpun

eða farsælu samhengi í fræðslustarfi.

 

2. Kennarar sem skilað hafa merku

ævistarfi eða á annan hátt hafa skarað

framúr.

 

3. Ungt fólk sem í upphafi kennsluferils

hefur sýnt hæfileika og lagt alúð við

starf sitt.

 

4. Höfundar námsefnis sem stuðlað hafa

að nýjungum í skólastarfi.

 

Nánari upplýsingar á www.forseti.is

Tilnefningar skal senda hvort sem er til skrifstofu forseta Íslands,

Staðastað, Sóleyjargötu 1, 150 Reykjavík, eða á menntaverðlaun@forseti.is

 

Síðasti skiladagur tilnefninga er þriðjudaginn 10. maí 2011.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira