logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir

50 ára afmæli Varmárskóla

29/05/12

50 ára afmæli Varmárskóla logoVarmárskóli fagnar 50 ára afmæli sínu laugardaginn 2. júní. Allir bæjarbúar eru hvattir til að fagna með okkur á þessum tímamótum og njóta skemmtilegrar dagskrár þar sem boðið er upp á fjölbreyttar sýningar, leikrits og tónleika. Verið velkomin á glæsilega afmælishátíð.

Meira ...

Sumarnámskeið

25/05/12

Margir eru farnir að huga að námskeiðum fyrir börnin í sumar. Á síðunni hér til hægri er tengill á rafrænan bækling þar sem hægt er að skoða tilboðin. Bækingurinn má einnig finna með því að smella hér.

Meira ...

Móttaka tilvonandi 1.bekkinga

24/05/12

kaffi og  vextirFimmtudaginn 24.maí var móttaka tilvonandi 1.bekkinga. Nemendur koma ásamt foreldrum sínum. Þeim var skipt upp í hópa, fengu sér hressingu og skoðuðu skólann. Foreldrar fengu eyðublöð til að fylla út vegna bekkjarskipta. Ákveðið var á fundinum með foreldrum að láta hverfisskiptingu ganga fyrir. Á myndasíðunni eru myndir: heimsókn 5 ára.

Meira ...

2. bekkur í útikennslustofunni Vin

24/05/12

2bekkur_vin_mai (21) (800x600)Miðvikudaginn 23. maí fórum börnin í 2. bekk í Vin. Þar settu þau niður kartöflur og fóru í námsleiki. Allir skemmtu sér mjög vel í blíðskapar veðri. Sjá myndir: 2.bekkur Vin-maí.

Meira ...

Vortónleikar Skólakórs Varmárskóla

23/05/12

Í Hörpu 1Skólakór Varmárskóla heldur vortónleika í sal Varmárskóla miðvikudaginn 23. maí klukkan 18:00. Um 70 – 80 börn og unglingar hafa tekið þátt í kórstarfinu í vetur sem hefur verið mjög blómlegt. Meðal annars kom kórinn fram í Hörpu ásamt Skólahljómsveit Mosfellsbæjar á

Meira ...

Fjallabræður í Varmárskóla

17/05/12

Ma_16_008Hljómsveitin Fjallabræður á Þjóðhátíðarlagið í ár og hefur á undanförnum vikum ferðast um landið í þeirri von að taka upp söng 10% þjóðarinnar. Miðvikudaginn 16. maí komu þeir félagar í Varmárskóla og kenndu krökkunumí eldri deild og hluta af yngri deild viðlagið við  Þjóðhátíðarlagið sem um ræðir. Krakkarnir tóku hressilega undir í upptökunum og það var virkilega gaman að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni. Sjá myndir á myndasíðunni - Fjallabræður

Meira ...

1.BI á ferð og flugi í vettvangsferðum

16/05/12

1bi_i_heimsokn_hja_™ssuri (2)1. BI hefur verið duglegur að fara í vettvangsferðir. Fóru þau meðal annars í heimsókn í Össur. Þar fengu þau að skoða „alvöru“ gervifót. Einnig fór þau í Sorpu en þau fóru með flöskur og dósir í endurvinnsluna. Tekið var vel á móti þeim enda eru þau dugleg að hugsa um umhverfið sitt. Einnig fóru krakkarnir í fróðlega og skemmtilega heimsókn í Papco.

 

Myndir frá þessum heimsóknum eru á myndasíðunni undir: 1-BI í Papco, 1-BI í Sorpu og 1-BI í Össur. 

 

Meira ...

Nemendur Varmárskóla kveðja Grétu Salome og Jónsa

14/05/12

Torgid (5)Föstudaginn 11.maí tókum við í Varmárskóla þátt í að kveðja Eurovisonfarana GrétuSalome og Jónsa á bæjartorginu ásamt öðrum skólum og leikskólum bæjarins.

Meira ...

Samvinna í 1.bekk og leikskóladeild

04/05/12

1b_og_leikskoladeildin_uti (19)Börnin í 1. bekk og leikskóladeildinni, þau sem eru í smíðahópnum, voru í útikennslustofunni Vin. Börnin tálguðu spýtur og fengu að grilla pylsur, sykurpúða og brauð. Einnig var boðið upp á heitt kakó. Sjá myndir á myndasíðunni: Tálgað úti

Meira ...

2.bekkur í Vin

01/05/12

2b_i_vin_april12 (10)Miðvikudaginn 25. apríl fór 2 ÁH og 2 SBT í Vin. Bekkjunum var skipt upp í fjóra hópa og fór hver hópur á fjóra mismunandi stöðvar. Á stöðvunum var farið í ýmsa námsleiki. Veðrið var mjög gott og börnin nutu útiverunnar.Sjá fleiri myndir á myndasíðunni: 2.bekkur í Vin

Meira ...

Síða 65 af 83

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira