Um skólann

Varmárskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. - 10.bekk. Skólaárið 2011-2012  eru rúmlega 680 nemendur í 32 bekkjardeildum auk leikskóladeildar sem rekin er við skólann í samvinnu við þrjá leikskóla í bænum til að íbúar Mosfellsbæjar eigi eins fjölbreytt leik- og grunnskólaúrræði og kostur er.

Varmárskóli er skipt upp í tvær deildir, yngri og eldri deild. Deildirnar eru í sitthvoru húsinu og þannig gefst tækifæri til að skapa menningu og andrúmsloft sem hæfir ólíku aldursstigi.

Yngri deild er með nemendur frá 1. - 6.bekk. Umsjónarkennarar kenna flesta tíma hjá sínum bekk og halda utan um námsskipulag og eru í samskiptum við foreldra. Eldri deild eru nemendur frá 7. - 10.bekk. Lögð er áhersla á faggreinakennslu, verk- og valgreinar.

 

Skólastjórar við Varmárskóla eru Þórhildur Elfarsdóttir (thorhildur(hjá) varmarskoli.is) og Þóranna Rósa Ólafsdóttir (thoranna(hjá)varmarskoli.is).

Deildarstjórar eru: Annelise Larsen Kaasgaard (annelise(hjá)varmarskoli.is), Guðrún Markúsdóttir (gudmark(hjá)varmarskoli.is), Óðinn Pétur Vigfússon (petur(hjá)varmarskoli.is).

 

Skrifstofa skólans er opin frá kl. 8:00-16:00 alla virka daga.

Skrifstofustjóri er Agnes Ágústdóttir (agnes(hjá)varmarskoli.is).

Að sækja um skólavist við Varmárskóla

Umsókn um skólavist, frístundasel og mötuneyti er á íbúagátt

Reglur um skólavist og skólahverfi

Námsvist í grunnskóla utan lögheimilis sveitarfélags