Nám og kennsla
Við í Varmárskóla leggjum upp með gildi Mosfellsbæjar, virðingu, jákvæðni, framsækni og umhyggju.
Í Varmárskóla er lagt upp með að skapa námsumhverfi sem er hvetjandi og þroskandi. Leitast er við að koma til móts við einstaklinginn á hans forsendum og efla með honum áhuga á námi og sjálfstæði í vinnubrögðum. Við skólann eru starfandi námsver. Þar er leitast við að bjóða uppá úrræði sem henta hverjum og einum skjólstæðingi versins í samráði við umsjónarkennara, sérkennara, þroskaþjálfa og stuðningsfulltrúa.
Lögð er áhersla á að horfa á árganginn í heild í stað einstakra bekkja. Á yngri stigum er samvinna námshópa innan og utan árganga og kennarar starfa mikið saman í samþættingarverkefnum og smiðjum. Á eldra stigi er áhersla á faggreinakennslu og nemendum ýmist kennt í bekkjum eða hópum.
Öflug list- og verkgreinakennsla er við skólann og eru verk nemenda sýnileg á göngum skólans.
Útinám, heilbrigt líferni og sjálfbær þróun hefur verið helsta verkefni skólans undanfarin tvö ár. Við skólann er komið útikennslusvæði sem er í stöðugri þróun. Skólinn tekur þátt í tveimur Comeniusar verkefnum næstu tvö árin og einu Nordplus Junior verkefni. Í fyrra Comeniusarverkefninu er þemað að vinna með HJARTA (tilfinningar), HÖNDUM (vinna úti) og HUGA (bóklegt). Þetta er tengt heilsu og útinámi og er frábær viðbót við áframhaldandi þróun okkar í þessum málum. Seinna Comeniusarverkefnið , "Comunication is an Art", byggir á að efla færni og samskipti milli nemenda í sex Evrópulöndum, Spáni, Tyrklandi, Póllandi, Svíþjóð, Þýskalandi og Ísland. Nordplus junior ber heitið‘ „Start with your self“ en það tekur á þáttum tengt umhverfi og náttúru.